Pantanir
Himri ABS ehf tekur við pöntun þegar greiðsla hefur borist. Um leið og greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti.
Afhendingartími
Afhendingartími er að jafnaði 2-4 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað. Hægt er að fá afhent samdægurs á Akureyri, ef pöntun berst fyrir kl 16. Við bjóðum uppá sendingar í póstbox um allt land, með Póstinum. Um vörur sem dreift er með Póstinum gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Póstsins um afhendingu vöru. Skilmálar Póstsins eru aðgengilegir á vefsíðu fyrirtækisins.
Sendingarkostnaður
Himri sendir frítt innan Akureyrar (600 og 603). Sendingarkostnaður í póstbox eru 1.490 kr.
ATH! Í undantekningartilfellum eru hlutir of stórir í póstbox og verður afhending á þeim hlutum í samráði við kaupanda.
Verð
Öll verð eru birt með 24% vsk. Verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilur Himri ABS ehf sér rétt til að hætta við viðskipti ef um villur er að ræða. Ef varan er ekki til á lager bjóðum við upp á endurgreiðslu.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Við skil á vöru er miðað við verð samkvæmt greiðslukvittun. Kaupandi getur fengið endurgreitt (innan 30 daga), fengið aðra vöru, eða inneignarnótu. Skilyrði er að varan sé heil og í upprunalegum umbúðum. Kaupandi ber kostnað af skilum. (ATH skilafrestur á ekki við um útsöluvöru)
Greiðslur
Við bjóðum upp á greiðslur með kreditkortum og nýjum debetkortum með 16 stafa númerum, sem og Netgíró. Þú getur greitt fyrir vöruna í vefverslun með kredit- og debetkorti í gegnum örugga greiðslugátt Teya (Teya.is)
Pei:
Trúnaður
Við heitum fullum trúnaði við viðskiptavini okkar og afhendum ekki upplýsingar til þriðja aðila.
Varnarþing
Þessir skilmálar eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli.
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um neytendasamninga nr 16/2016 og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 16/2016 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.